Árið 2020

Gengi á markaði

Gengi félagsins

Í lok ársins 2019 var gengi félagsins 35 en í lok árs 2020 var það 39 og hafði því hækkað um 11,4% á milli ára. Fyrstu mánuði ársins 2020 lækkaði gengi bréfa í félaginu og fór það lægst í 22,85 um miðjan júlí. Frá ágústlokum hefur gengi félagsins hækkað stöðugt og var það hæst undir lok árs.

Á árinu 2020 nam velta með bréf í félaginu rúmlega 6,5 milljörðum króna í alls 1.404 viðskiptum og eykst fjöldi viðskipta um 54,5% á milli ára. Mest var velta með bréf félagsins í október en heildarvelta þess mánaðar nam 979 milljónum króna.

Útgefið hlutafé félagsins í upphafi árs nam 2.964 m.kr. og stóð óbreytt í árslok. Félagið á engin eigin bréf og er útistandandi hlutafé því það sama og útgefið.

syn gengi a markadi 1920x1080

10 stærstu hluthafar við árslok 2020

Nafn hlutur %
Gildi lífeyrissjóður 12,73%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 10,73%
Kvika banki hf. 9,27%
Birta lífeyrissjóður 9,23%
Ursus ehf. 9,16%
Arion banki hf. 6,32%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins A deild 6,27%
Stapi lífeyrissjóður 4,93%
Festa - lífeyrissjóður 2,91%
Frostaskjól ehf. 2,53%

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú skilmála okkar um notkun á vefkökum, að öðrum kosti getur þú kynnt þér hvernig má stýra notkun þeirra.