Árið 2020

Stjórn

Stjórn félagsins ásamt forstjóra fer með æðsta vald í málefnum félagsins milli hluthafafunda og ber meginábyrgð á rekstri þess. Ásamt forstjóra hefur hún forystu um að móta stefnu, setja markmið og áhættuviðmið félagsins, bæði til skemmri og lengri tíma.

STJÓRNARFORMAÐUR

Hjörleifur Pálsson

Hjörleifur Pálsson, stjórnarformaður, er fæddur árið 1963. Hann var fyrst kosinn í stjórn félagsins 11. apríl 2013. Hjörleifur er viðskiptafræðingur, útskrifaður með Cand Oecon gráðu frá Háskóla Íslands 1988. Hann hlaut löggildingu til endurskoðunarstarfa árið 1989 og starfaði sem endurskoðandi til 2001. Hann var framkvæmdastjóri fjármálasviðs Össurar hf. frá 2001 til 2013. Hjörleifur er formaður stjórnar og formaður háskólaráðs Háskólans í Reykjavík. Hann situr í fjárfestingarráði Akurs fjárfestinga slhf., í stjórn Brunns vaxtarsjóðs slhf., Lotus Pharmaceutical Co., Ltd í Taívan og Ankra ehf. Hann er jafnframt formaður tilnefningarnefndar Icelandair Group hf. og á sæti í endurskoðunarnefnd Landsbankans hf. Hjörleifur átti 250.000 hluti í félaginu í árslok 2020.

STJÓRNARMAÐUR

Hilmar Þór Kristinsson

Hilmar Þór er fæddur árið 1966. Hann hefur frá árinu 2013 starfað sem framkvæmdastjóri Reirs ehf., eignarhalds- og fjárfestingarfélags, en hann er jafnframt stofnandi og eigandi félagsins. Hann starfaði áður sem ráðgjafi einkabankaþjónustu og síðar fyrirtækjasviðs Auðar Capital, sem ráðgjafi einkabankaþjónustu Landsbanka Íslands og forstöðumaður IT-mála Icelandair hótela. Hann hefur lokið BS-prófi í tölvunarfræði ásamt MBA-prófi frá Háskóla Íslands. Hilmar Þór er einn af eigendum Frostaskjóls ehf. sem á beint eða óbeint 20.150.000 eignarhluti í Sýn hf. Hann á einnig 1.500.000 hluti í Sýn hf. í gegnum eigið félag, Fasta eignarhaldsfélag ehf. Það er mat tilnefningarnefndar, út frá leiðbeiningum Viðskiptaráðs Íslands um góða stjórnarhætti, að Hilmar Þór Kristinsson sé óháður félaginu og daglegum stjórnendum þess. Hilmar Þór er ekki óháður stórum hluthöfum í félaginu.

STJÓRNARMAÐUR

Petrea Ingileif Guðmundsdóttir

Petrea Ingileif er fædd árið 1974. Hún hefur 13 ára reynslu sem stjórnandi og sérfræðingur hjá fjarskipta- og afþreyingarfyrirtækjum. Hún starfaði m.a. sem framkvæmdastjóri sölu-, þjónustu- og markaðssviðs 365 á árunum 2014 til 2016 og sem forstjóri Tals frá 2013 til 2014. Hún starfaði einnig sem framkvæmdastjóri markaðssviðs Símans og markaðsstjóri Símans og Skjás eins. Petrea Ingileif hefur lokið BS-prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Hún situr í stjórnum Icepharma, Terra, og Allianz ásamt því að sinna ráðgjafarstörfum. Hún var stjórnarformaður Símafélagsins árin 2017 og 2018. Petrea Ingileif á ekki eignarhlut í félaginu. Það er mat tilnefningarnefndar, út frá leiðbeiningum Viðskiptaráðs Íslands um góða stjórnarhætti, að Petrea Ingileif Guðmundsdóttir sé óháð félaginu, daglegum stjórnendum þess og stórum hluthöfum í því.

STJÓRNARMAÐUR

Sigríður Vala Halldórsdóttir

Sigríður Vala Halldórsdóttir er fædd árið 1983. Hún var kjörin sem varamaður í stjórn Sýnar hf. í mars 2019 og tók sæti í stjórn félagsins í apríl 2019. Hún hefur frá árinu 2016 starfað sem forstöðumaður hagdeildar hjá Sjóvá, ásamt því að sitja í fjárfestingarnefnd félagsins og sinna hlutverki fjárfestatengils. Af öðrum stjórnarstörfum má nefna að hún hefur verið aðalmaður í stjórn HS Veitna frá árinu 2014. Sigríður Vala er með B.Sc.-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands 2006 og M.Sc.-gráðu í iðnaðarverkfræði frá University of Minnesota 2008. Þá er hún löggiltur verðbréfamiðlari frá 2009. Sigríður Vala starfaði hjá fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka 2008-2015 sem sérfræðingur og síðar verkefnastjóri. Hún var forstöðumaður viðskiptastýringar Creditinfo 2015-2016.

VARAFORMAÐUR STJÓRNAR

Tanya Zharov

Tanya Zharov er fædd árið 1966. Hún starfar sem aðstoðarforstjóri Alvotech. Hún var fyrst kosin í varastjórn 16. mars 2017 og síðan í aðalstjórn Sýnar á aðalfundi 2019. Tanya hefur lokið Cand. jur. prófi frá Háskóla Íslands. Hún starfaði sem aðstoðarforstjóri Íslenskrar erfðagreiningar frá 2016-2020. Hún var framkvæmdarstjóri lögfræðisviðs Auðar Capital, síðar Virðingar hf., 2008-2015. Tanya er formaður stjórnar Íslandssjóða hf. Hún situr í stjórn Skólavegar ehf. og Talna ehf. Tanya á hlutafé í Sýn í gegnum eignarhaldsfélagið Tölur ehf. Fjöldi hluta er 3.472.

Árið 2020

Framkvæmdastjórn

Framkvæmdastjórn félagsins ber ábyrgð á daglegum rekstri þess og fylgni við rekstraráætlanir.

FORSTJÓRI

Heiðar Guðjónsson

Heiðar er forstjóri Sýnar og tók við starfinu vorið 2019. Hann kom inn í stjórn félagsins í apríl 2013 og var stjórnarformaður frá 2014 til 2019. Áður starfaði Heiðar sem framkvæmdastjóri eigin fjárfestingarfélags. Hann er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur frá árinu 1996 einkum starfað á alþjóðlegum fjármálamörkuðum, lengst af í New York, London og Zürich. Hann hefur m.a. komið að stórum alþjóðlegum fjárfestingum í fjarskiptafélögum, s.s. næststærsta símafyrirtæki Finnlands og stærsta símafyrirtæki Búlgaríu. Heiðar situr einnig í stjórn Ursus ehf., Köldukvíslar hf., Innviða fjárfestinga slhf. og HS Veitna.

AÐALLÖGFRÆÐINGUR

Páll Ásgrímsson

Páll Ásgrímsson er aðallögfræðingur félagsins en undir hann heyra einnig gæða- og öryggismál, samskiptamál, aðfangastýring og verkefnastýring. Páll kom til starfa hjá félaginu 2014 en áður var hann einn af eigendum lögfræðistofunnar Juris. Hann er reynslumikill lögmaður á sviði félagaréttar, auk þess að hafa sérhæft sig á sviði fjarskipta-, upplýsingatækni- og samkeppnisréttar. Um árabil starfaði Páll sem forstöðumaður og síðar framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Símans (síðar Skipta) auk þess að búa að reynslu frá EFTA og ESA í Brussel og Samkeppnisstofnun. Páll hefur auk þess setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja innan fjarskiptageirans, t.d. Símans hf., Mílu ehf., FARICE hf. og Skjásins ehf.

FJÁRMÁLASTJÓRI

Signý Magnúsdóttir

Signý Magnúsdóttir hefur verið fjármálastjóri Sýnar hf. frá 1. júní 2019. Hún lauk meistaranámi í reikningsskilum og endurskoðun við Háskóla Íslands árið 2007 og hlaut löggildingu til endurskoðunar árið 2011. Signý hóf störf hjá Deloitte árið 2006 og varð meðeigandi á endurskoðunarsviði félagsins árið 2013. Hjá Deloitte sinnti Signý einna helst endurskoðun og ráðgjöf á sviði reikningsskila fyrir meðalstór og stór fyrirtæki, þar á meðal skráð fyrirtæki og fyrirtæki sem starfa í alþjóðlegu umhverfi. Signý situr í Reikningsskilaráði.

FRAMKVÆMDASTJÓRI REKSTRARSVIÐS

Yngvi Halldórsson

Yngvi Halldórsson er fæddur árið 1977. Hann er með B.S.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og sat í stjórn félagsins árin 2014-2019. Fyrst í varastjórn til 2017 þegar hann tók sæti í aðalstjórn. Á árunum 2000 til 2005 starfaði Yngvi sem ERP-ráðgjafi í Dynamics Nav hjá Maritech ehf. Árin 2006 til 2008 var Yngvi sjóðsstjóri erlendra hlutabréfasjóða hjá Landsvaka ehf. Hann starfaði síðan hjá Össuri hf. frá árinu 2008 til 2018 og gegndi þar ýmsum störfum, síðast sem CIO og VP of Global Business Services. Yngvi varð í byrjun árs 2018 meðeigandi í fjárfestingarfélaginu Alfa Framtaki ehf. sem rekur m.a. framtakssjóðinn Umbreytingu. Yngvi er fyrir hönd Umbreytingar stjórnarformaður hjá Borgarplasti hf. og situr í stjórn Nox Health.

FRAMKVÆMDASTJÓRI MIÐLA

Þórhallur Gunnarsson

Þórhallur Gunnarsson hefur verið framkvæmdastjóra Miðla frá 22. maí 2019. Hann er með meistaragráðu í sjónvarpsþáttagerð frá Goldsmiths, University of London og var í 6 ár framkvæmdastjóri sjónvarps- og kvikmyndadeildar Sagafilm. Þar áður var hann dagskrárstjóri RÚV, ritstjóri Kastljóss, auk þess sem hann hefur stýrt fjölmörgum sjónvarpsþáttum af öllu tagi, m.a. Íslandi í dag á Stöð 2. Þórhallur hefur átt sæti í framkvæmdastjórn RÚV og stjórn Sagafilm. Hann hefur undanfarin ár verið framleiðandi margra stærstu sjónvarpsþátta á Íslandi, hvort sem um er að ræða leiknar sjónvarpsþáttaseríur, heimildamyndir, fræðsluefni eða skemmtiþætti. Þórhallur kennir miðlun upplýsinga í MBA-námi við Háskóla Íslands.

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú skilmála okkar um notkun á vefkökum, að öðrum kosti getur þú kynnt þér hvernig má stýra notkun þeirra.