Ársreikningur 2020

Efnahagur og sjóðstreymi

Heildareignir og veltufjárhlutfall

Heildareignir samstæðunnar námu 30.862 m.kr. í árslok og lækkuðu um 3,5% á milli ára. Veltufjárhlutfall var 1,1 í lok árs 2020 samanborið við 1,3 í lok árs 2019.

Loading...

Eigið fé og eiginfjárhlutfall

Í lok ársins 2020 var eigið fé 8.549 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 27,8%. Útistandandi hlutafé í lok tímabilsins nam 2.964 m.kr. og stóð óbreytt frá árslokum 2019.

Loading...

Hreinar vaxtaberandi skuldir/EBITDA

Hreinar vaxtaberandi skuldir námu 15.419 m.kr. í árslok 2020 og var hlutfall þeirra á móti EBITDA-hagnaði sl. 12 mánaða 2,7. Reikningshaldslegri meðferð sýningarétta var breytt á árinu 2019, afturvirkar breytingar voru gerðar á fjárhæðum vegna ársins 2018. Nýr staðall um leigusamninga (IFRS 16) var innleiddur á árinu 2019 en ekki voru leiðréttingar færðar afturvirkt.

Loading...

Fjárfestingar

Rekstrarfjárfestingar námu 1.049 m.kr. á árinu 2020 og lækkuðu um 43% á milli ára. Hlutfall fjárfestinga af tekjum var 5%.

Loading...

Frjálst fjárflæði

Frjálst fjárflæði félagsins á árinu 2020 var 3.210 m.kr. en á fyrra ári nam það 1.682 m.kr.

Loading...
Ársreikningur 2020

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú skilmála okkar um notkun á vefkökum, að öðrum kosti getur þú kynnt þér hvernig má stýra notkun þeirra.